Færsluflokkur: Dægurmál

Trú-Von og kærleikur

Fyrir sumum er TRÚ-VON OG KÆRLEIKUR hálsfesti ýmist úr gulli eða silfri.Fyrir mér er þetta Jesús kristur,hann er trú-von og kærleikur.Síðan ég tók trú og játaði Jesús sem frelsara minn og leiðtoga,hefur margt breyst í lífi mínu til hins betra og hlutir gengið upp sem mér fannst nánast óvinnandi áðurÉg á í dag yndislega fjölskyldu,fáa en góða vini en umfram allt á ég samfélag við Jesús,því ef ég ætti það ekki þá ætti ég ekki neitt.Ef maður er staðfastur í trúnni,sýnir þolgæði,auðmýkt og gengur fram í kærleika,þá ganga hlutirnir upp.Um leið og ég áttaði mig á því,að ég get ekki breytt öðrum eins og ég vildi hafa þá verður þetta auðveldara,við getum bara breytt sjálfum okkur,þar er Jesús besti leiðbeinandinn.Í Biblíuni er allt sem þú þarft að vita til að lifa góðu og grandvöru lífi.Mundu því það,að þú skalt koma fram við náungann eins og þú vilt að hann komi fram við þig.Drottinn blessi ykkur.

                                                                  Jobbi

 


Gleðilegt sumar.

SvalurLoksins kom sumarið.Það er búið að vera þvílíkur hiti síðustu 2 daga,að maður er að grillast.Nú getur maður kvartað yfir of miklum hita,áður var það rigníngin.Það er nefnilega alveg sama hvernig veðrið er,við kvörtum alltaf,of kalt,of heitt,rigníng,snjókoma,þetta er okkur í blóð borið,eða hvað haldið þið?Er maðurinn bara svona kvörtunarsamur eða er þetta bara til að tala um eitthvað?Jú til að tala um eitthvað,þegar umræðuefni þrýtur er alltaf svissað yfir í veðrið það klikkar ekki.Þá muna menn eftir rigningasumrinu mikla "69,harða vetrinum "57 og þar fram eftir götunum.En það er sama hvað við möglum um veðrið,við breytum því ekki,það hefur Drottinn alfarið í hendi sinni.

                                                                      Jobbi


Sumar?hvaða sumar?

UllandiÞað fer lítið fyrir sumrinu eins og er hjá okkur,en þvílík hitabylgja í Kóngsins Köben.Hvað um það!mér finnst skifta meira máli að hafa gleði og frið í hjarta sér,það vil ég kalla sumar.Ef þú ert ekki ánægður með líf þitt og sjálfan þig,þá ertu ekki ánægður með veðrið og skiftir ekki máli hvort það er sól eða rigníng.Allt í kringum mann verður eins og manni líður sjálfum.Auðvitað getur manni fundist rigníng leiðinleg,en þarf maður að velta sér upp úr því?NEI!enda kvörtum við líka yfir mikilli sól og hita,stundum bara til að kvarta,en margir kvarta yfir öllu,þannig að það er útilokað að gera þeim til hæfis.Það var svo gott veður að ég datt í það,eða það var svo mikil rigníng.Kannist þið við þetta?ég geri það.

Hvað er svona hættulegt við það að fara til Búlgaríu fyrir suma en aðra ekki?sumir detta í það,er það vegna þess að bjórin kostar bara 50kr ?eða var ekki búið að taka ákvörðun um að hætta fyrra líferni og taka háttaskiftum hugarfarsins?Þeir skilja þetta sem eiga að skilja þetta,en þetta eru mínir þankar.

                                                    Jobbi


Kjölur

Svalur Við Hreinsi fórum um síðustu helgi norður yfir kjöl til að fara á Land Rover mót sem haldið var í Dalsmynni skamt frá Blönduósi.Lagt var af stað á föstudagskvöldið upp úr kl 2100.Kjölur var nokkuð góður og nánast eingin umferð,enda við svo sem ekkert að flýta okkur.Er komið var í Húnavatnssýslu byrjaði að rigna og fylgdi því þoka.Við komum að Dalsmynni upp úr miðnætti og voru fáir komnir og allt með ró og spekt.Var hafist handa við að tjalda(Eva tjaldaði meðan ég hitaði kaffi)síðan var farið í háttinn enda orðin þreytt og dösuð.Ágætt veður daginn eftir og fórum við á Blönduós til að versla í Samkaup sem er í raun rænígjabæli miðað við verðlagið.Er við komum til baka voru flestir í jeppaferð upp á Kili en þar sem við vorum þar kvöldið áður töldum við það nægja okkur að sinni enda ætluðum við Kjölinn til baka á sunnudeginum.Það var keppni í jafvægisæfingum á tvíslá fyrir jeppana og tókum við þátt í því,ég náði öðrum besta tímanum sem er nokkuð gott í fyrsta skifti held ég.Flugvél kom og dritaði niður sælgæti fyrir börnin við mikla hrifníngu.Lítið var um neyslu áfengis og fór hún vel fram,já það er til fólk sem kann með þetta að fara.

Rovermót og bensín á Disel?????

Jæja gott fólk!Núna um helgina er haldið Mót fyrir Land Rover eigendur,er það haldið rétt hjá Húnaveri skammt frá Blönduósi.Það eru allir velkomnir þó þeir eigi ekki Land Rover,en menn eru komnir mislangt í batanum hehehehe.Frúin brá sér í bæinn í gærkveldi í barnaafmæli,en ég var að flytja dót á meðan,en við erum að fara héðan í kjallaran á gula húsinu.Svo vara hringt og sagt!ég var að taka olíu á bílinn en dældi á hann bensíni,og ekkert lítið magn heilir 68 ltr en tankurinn tekur 95 ltr.Ég varð vægast sagt drullufúll og brást frekar ílla við þessum tíðindum,en hvað getur maður gert?jú ég varð að fara í bæinn og fékk Hreinsa vin minn með mér,alltaf er hann tilbúinn í að aðstoða ef eitthvað bjátar á.Nú við komum í bæinn rétt fyrir miðnætti og hófum björgunaraðgerðir.

Urðum við að sjúga með slöngu af bílnum og náðum við af honum tæpum 80 ltr+það sem ég drakk af þessum viðbjóði,var maður orðin æði eldfimur.Síðan var bíllinn dregin á bensínstöð en nú var tekin olia,bíllinn fylltur og sett í gang.Gangurin var nú hálftrunntulegur í fyrstu en svo jafnaði kvikindið sig enda Land Rover.Komið heim kl 2 um nóttina.happy ending.

                                                           Jobbi


Kæru vinir!

SvalurÉg vil minna ykkur á sem eruð svo almennileg að heimsækja þessa síðu,að skrifa í gestabókina og endilega að gera athugasemdir og hleypa smá fjöri í þetta.Hvað um það þetta er nú ekki aðalmálið í dag.Nú er loksins rigníngarlaus dagur en skyjað,viðrar þokkalega til útiveru.Maður hefði nú gott af því að fara í góða gönguferð í staðin fyrir að sitja við tölvuna,reykja og þamba kaffi og ekki sýst,stækka bumbuna,en hún dafnar ágætlega þessa dagana enda líka búið að vera þónokkur veisluhöld undanfarið.Hvernig væri að stofna gönguhóp Byrgisins????eruð þið til?Ég er til.

                                                                 JobbiUllandi


HÆ HÓ JIBBY JEY JIBBYA JEY

Það er komin 17 Júní.Til hamingju með daginn öll sömul.Í dag eru það blöðrur og fánar sem gilda,skrúðgöngur og ávarp fjallkonunar.Hver er þessi fjallkona? er hún ofan af fjalli,innan úr fjalli eða býr hún á bænun fjalli.Hvað um það ég hef aldrey skilið tilurð þessarar fjallkonu og hvað hún kemur þjóðhátíðardeginum við.Ég er sennilega ekki nógu mikill menníngarviti til að skilja þetta prjál,enda nýkomin á Land Rover,en eins og margir muna voru þetta landbúnaðartæki fram eftir öllu,þó svo margur hafi notað þá sem fjölskyldubíla.Nú eru þessir bílar gjörbreyttir hvað varðar þægindi og aðbúnað enda orðnir nokkuð dýrir og mitt viðhorf breytt gagnvart þeim enda kominn á einn.

                              Lifið heil, húrra-húrra-húrra. Jobbi


Discovery series 2,árg:2003 orðin að veruleika.

Jæja þá er búið að staðfesta kaupin á Rovernum,fæ hann á 2,7 milj,en það var sett á hann 3,070,000.fæ rúm 15hundruð fyrir Cherokee svo það er bara gaman framundan jeppaferðir og næs.

 


Land Rover.

Ja hérna nú er ég fallinn fyrir Land Rover Discovery 2 árg 2003.Þetta er glæsilegur bíll,leður og alles.Ég prófaði hann í morgun og viti menn það er miklu betra að keyra .essa bíla en ég gat ímyndað mér,ég hef nú ekki haft mikið álit á þessum bílum,litið á þá sem hraðskreiðar dráttavélar,en verð að gjöra svo vel og éta það ofan í mig.Kom mér rosalega á óvart hvað þetta eru miklir jeppar en samt mjúkur í akstri enda á gormum hringinn.Mér skilst að þessir bílar seu hálfgerð trúarbrögð hjá eigendum sínum.hjá mér er Jesú no 1 svo kannski L R.Hvað um það ég fer í fyrramálið og geri tilboð og sjá hvað þeir vilja taka Cherokee upp í.

                                                                            jobbi


Hætt við sumarhátíð

Tala af sérÞað er búið að ákveða það að fresta sumarhátíð þetta sumarið.Erfiðlega hefur gengið á fá hljómsveitir því þær eru bókaðar með miklum fyrirvara.Einnig er 10 ára afmæli Byrgisins 1 Desember og verður haldið veglega upp á það.Samt sem áður verðum við með smá uppistand fyrir vistmenn og þeirra nánustu ef vel viðrar og eitthvað verður úr þessu sumari.

                                                                       Jobbi


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

jósep sigurðsson
jósep sigurðsson
Hef áhuga svona almennt á lífinu og tilveruni.Áskil mér þann rétt að hafa skoðanir á málefnum og þjóðmálum án þinnar íhlutunar en þér er frjálst að gefa coment án skítkastsjobbisig@gmail.com
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 1568

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlistarspilari

ApologetiX - Love The Jews (Love Me Do / Beatles)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband