5.7.2006 | 22:58
Kjölur
Við Hreinsi fórum um síðustu helgi norður yfir kjöl til að fara á Land Rover mót sem haldið var í Dalsmynni skamt frá Blönduósi.Lagt var af stað á föstudagskvöldið upp úr kl 2100.Kjölur var nokkuð góður og nánast eingin umferð,enda við svo sem ekkert að flýta okkur.Er komið var í Húnavatnssýslu byrjaði að rigna og fylgdi því þoka.Við komum að Dalsmynni upp úr miðnætti og voru fáir komnir og allt með ró og spekt.Var hafist handa við að tjalda(Eva tjaldaði meðan ég hitaði kaffi)síðan var farið í háttinn enda orðin þreytt og dösuð.Ágætt veður daginn eftir og fórum við á Blönduós til að versla í Samkaup sem er í raun rænígjabæli miðað við verðlagið.Er við komum til baka voru flestir í jeppaferð upp á Kili en þar sem við vorum þar kvöldið áður töldum við það nægja okkur að sinni enda ætluðum við Kjölinn til baka á sunnudeginum.Það var keppni í jafvægisæfingum á tvíslá fyrir jeppana og tókum við þátt í því,ég náði öðrum besta tímanum sem er nokkuð gott í fyrsta skifti held ég.Flugvél kom og dritaði niður sælgæti fyrir börnin við mikla hrifníngu.Lítið var um neyslu áfengis og fór hún vel fram,já það er til fólk sem kann með þetta að fara.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 1569
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Tímataka ja humm hehe
Hreini (IP-tala skráð) 5.7.2006 kl. 23:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.