Það er nú varla hægt að taka svona fólk alvarlega.

Siðmennt og vantrú eru felagsskapur fólks með ákveðnar skoðanir á hvernig kristið samfelag skuli vera,svo þeim líki.Fyrir mér er þetta orðin einhver þráhyggja og eingin almennilegur rökstuðningur á bak við. Siðmennt telur um 200 félaga,Vantrú um 70. Sem sagt 270 manns af ríflega 300 000. Vantrú vill láta breyta þjóðsöngnum af því að séu 20 000 þúsund manns á knattspyrnuleik geti bara 10 000 súngið(þeirra rök). Bull og kjaftæði. Siðmennt vill stjórna því hvernig og hvar skuli börnum kennt trúarbragðafræði,prestar megi vera í fangelsum og sjúkrahúsum en alls ekki koma nálægt börnum.Er ég var í skóla fyrir rúmum 30 árum var kennd kristinfræði,en kennarinn upplýsti okkur líka um önnur trúarbrögð,samt voru eingin börn af öðru þjóðerni eða annari trú en kristinn í mínum skóla.Ég hef alltaf verið fylgjandi frálsræði og að fólk hafi sinn rétt til að velja og hafna og þannig á það að vera en ekki svona. Siðmennt virðist vera baráttutæki fyrir 1 mann sem heitir Bjarni,og er þetta baráttumál hans orið að skömm fyrir Siðmennt og hann sjálfan fyrst og fremst. Ég veit að börnum er kennt um ýmis trúarbrögð í skólum almennt og þarf ekki að upplýsa þau svo þau geti valið,eða er Bjarni komin eitthvað útaf? Þetta hefur aldrey verið vandamál hjá neinum nema Bjarna akkúrat núna. Drottinn blessi Siðmennt og vantrúaða.

                                                                     JOBBI


Í dag var etið sér til óbóta.

Ég vil nú votta aðstandendum litla drengsins alla mína samúð.

Í dag var haldið upp á afmæli Kristbergs,en hann á að vísu ekki afmæli fyrr en 22 Desember. Svo það hefur verið venjan að halda upp á það fyrstu helgina í Desember,til að slíta það frá jólunum.Hann er 5 ára.Það kom mikið af fólki og hans kærasta vinkona,Sara dóttir Magga Einars kom og það voru miklir fagnaðarfundir.Það er búið að skreyta hér heilmikið og set ég nokkrar myndir af því inn á síðuna ásamt myndum úr afmælinu hans.

                                                                  Jobbi


Átakanlegt að lesa um þetta atvik.

Það má vel vera að sá sem ók á barnið hafi verið í allskonar ástandi,eða sjokkerast. Hvað um það ég skora á hann að gefa sig fram,því hann mun finnast. Þangað til skulum við byðja fyrir blessuðu barninu og byðja Jesús að umvefja hann ást,kærleik og lækningu. Byðjum fyrir foreldrum og aðstandendum þessa litla drengs. Amen.

                                                                  Jobbi


mbl.is Allar upplýsingar vel þegnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er spurnigin!í hvers konar ástandi var hann eða hún

Gleymið ekki að þetta hefur oft skeð,en það þarf kaldtrifjaðjan mann til að gera svona.Og núna er ég hlynntur dauðarefsingum sem ég er annars á móti.HVAÐ ER AÐ SKE. Finnum hann,dæmum  hann og stöndum vörð um börnin okkar.kv jobbi.
mbl.is Allar vísbendingar kannaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stónsarinn tók hann sjálfur.

Sýsli var á röltinu á leið í vinnu er hann gekk yfir bílaplanið við hótel Selfoss,sá hann er pilturinn hennti þessu út um gluggan.Sýsli gekk að bílnum,settist inn bað piltinn að aka upp á lögreglustöð.Gekk með hann inn og kærði hann fyrir þessa háttsemi. Þannig var mér sagt frá þessu. Enn þetta er flott.Police
mbl.is 10 þúsund króna pylsa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

jósep sigurðsson
jósep sigurðsson
Hef áhuga svona almennt á lífinu og tilveruni.Áskil mér þann rétt að hafa skoðanir á málefnum og þjóðmálum án þinnar íhlutunar en þér er frjálst að gefa coment án skítkastsjobbisig@gmail.com
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.1.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 1556

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlistarspilari

ApologetiX - Love The Jews (Love Me Do / Beatles)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband