Skýr skilaboð.Haleluja!

Rafa Benitez, stjóri Liverpool, segir að sigur sinna manna á Stamford Bridge séu skýr skilaboð til annarra liða í deildinni.

„Leikmenn sýndu hvers þeir eru megnugir í dag og sigurinn færir þeim mikinn aukakraft fyrir komandi átök," sagði Benitez.

Hann sagði þó að það væri mikilvægt að fylgja sigrinum eftir. Þegar að Liverpool vann Manchester United í haust gerði liðið jafntefli við Stoke í næsta leik.

„Við verðum að ná í þrjú stig í næsta leik okkar sem er gegn Portsmouth," sagði Benitez en leikurinn fer fram á heimavelli Liverpool á miðvikudagskvöldið.

Liverpool varð fyrsta liðið til að vinna Chelsea á Stamford Bridge í deildarleik síðan í febrúar 2004. Alls lék Chelsea 86 heimaleiki í röð án þess að tapa sem er met í efstu deild í Englandi.

„Við getum farið á hvaða völl sem er og unnið leiki. Við mættum mjög góðu og sókndjörfu liði og sýndum að við ætluðum okkur að vinna þennan leik."

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

jósep sigurðsson
jósep sigurðsson
Hef áhuga svona almennt á lífinu og tilveruni.Áskil mér þann rétt að hafa skoðanir á málefnum og þjóðmálum án þinnar íhlutunar en þér er frjálst að gefa coment án skítkastsjobbisig@gmail.com
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 1242

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Tónlistarspilari

ApologetiX - Love The Jews (Love Me Do / Beatles)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband